
CBCT námsheið
Samkennd í samfélaginu
Aðalverkefni Samtaka um félags-, tilfinninga- og siðferðinám á Íslandi er Samkennd í samfélaginu, sem hefur það að markmiði að efla farsæld barna, ungmenna og fullorðinna með því að styrkja félags-, tilfinninga- og siðferðisfærni.
Megináhersla verkefnisins er að gera gagnreynt námsefni í félags-, tilfinninga- og siðferðisnámi aðgengilegt á íslensku. Námsefnið nefnist Samfó (SEE Learning – Social, Emotional and Ethical Learning) og byggir á heildstæðri nálgun þar sem unnið er markvisst með samkennd, sjálfsvitund, tilfinningastjórnun, samskipti, gagnrýna hugsun og samfélagslega ábyrgð.
Verkefnið byggir á þeirri sannfæringu að samkennd sé ekki aðeins persónulegur eiginleiki heldur færni sem hægt er að þjálfa og efla. Með því að styrkja hæfni einstaklinga til að skilja sjálfa sig, tengjast öðrum og axla ábyrgð á eigin gjörðum skapast sterkari grunnur fyrir farsæld einstaklinga og samfélagsins í heild.
Hugræn samkenndarþjálfun (CBCT)
Samkennd í samfélaginu nær ekki aðeins til barna og ungmenna heldur einnig til þeirra fullorðnu sem gegna lykilhlutverki í lífi þeirra. Því leggja samtökin sérstaka áherslu á Hugræna samkenndarþjálfun (Cognitively-Based Compassion Training – CBCT®).
CBCT er gagnreynd nálgun sem þróuð var við Emory-háskóla og sameinar athyglisþjálfun, ígrundun og hugrænar aðferðir til að efla samkennd, sjálfsvitund, seiglu og tilfinningalega færni. Þjálfunin styður þátttakendur í að skilja eigin hugarferli betur, bregðast við af meiri vitund og rækta uppbyggilegri tengsl við aðra.
Nálgunin tengist markmiðum Samfó með skýrum hætti þar sem hún styður við þróun innri færni sem er grundvöllur jákvæðra samskipta, vellíðunar og samfélagslegrar ábyrgðar. Sérstök útgáfa CBCT hefur verið þróuð fyrir fagfólk í skóla- og frístundastarfi með það að markmiði að efla innri bjargráð, faglega seiglu og vellíðan. Með því að styrkja eigin færni geta kennarar, stjórnendur og annað fagfólk betur stutt börn og ungmenni og tekið þátt í að skapa öruggt, styðjandi og samkenndarríkt námsumhverfi.
Saman mynda Samfó og CBCT mikilvægan grunn að þeirri framtíðarsýn samtakanna að efla samkennd, ábyrgð og farsæld í íslensku samfélagi – einstaklingum og samfélaginu öllu til heilla.
Hvernig er hægt að læra CBCT?
CBCT er yfirleitt kennt í skipulögðum 8-10 vikna námskeiðum þar sem þátttakendur læra í gegnum fræðslu, leiðsögn og reglulega æfingu. Þjálfunin byggir á blöndu af hugleiðslu, ígrundun og hagnýtum æfingum sem styðja við að samþætta færnina inn í daglegt líf og starf.
Í boði eru sérsniðin námskeið þar sem áhersla er lögð á árangursríkar aðferðir fyrir skólasamfélagið, bæði til að efla eigin vellíðan og til að styðja nemendur. Einnig er hægt að sækja lengri leiðbeinendaþjálfun fyrir þau sem vilja dýpka skilning sinn og miðla aðferðinni áfram.
Hægt er að kynna sér námskeið og skrá sig í CBCT þjálfun á vegum Emory University hér: https://compassion.emory.edu/cbct/
Stefnt er að því að bjóða upp á CBCT þjálfun á íslensku á næstu árum, þannig að aðgengi að þessari nálgun verði enn betra fyrir fagfólk og almenning hér á landi.
