
Samtökin
Samtök um félags-, tilfinninga- og siðferðinám á Íslandi eru félagasamtök fagfólks sem hafa það markmið að auka samkennd í samfélaginu með því að efla félags-, tilfinninga- og siðferðisfærni í íslensku samfélagi.
Samtökin starfa í nánu samstarfi við skólasamfélagið og stefnumótandi aðila með það að markmiði að auka aðgengi að gagnreyndu námsefni og fræðslu á þessu sviði. Jafnframt beita þau sér fyrir innleiðingu og rannsóknum sem styðja við markvissa þróun og gæði í námi og starfsháttum.
Hér er hægt að skrá sig í samtökin
Samtökin hafa haft rík tengsl við skóla- og fræðasamfélagið frá stofnun þeirra og starfandi er lærdómssamfélag sem samanstendur af reynslumiklum kennurum og fræðafólki. Sá hópur hefur haft veg og vanda að þýðingu og staðfærslu námsefnisins auk þess að hittast reglulega og næra sameiginlegan fræðilegan áhuga.
Stofnendur og stjórn samtakanna skipa þær Bryndís Jóna Jónsdóttir og Dr. Ingibjörg Vala Kaldalóns en þær stofnuðu samtökin árið 2024 með dætrum sínum, Svanhvíti Lilju Viðarsdóttur, Unni Kaldalóns og Margréti Stellu Kaldalóns.

Bryndís Jóna Jónsdóttir
Menntun:
B.Ed. grunnskólakennarafræði
MA náms- og starfsráðgjöf
MA diplóma í jákvæðri sálfræði
Starf: Aðjúnkt og doktorsnemi við Menntavísindasvið HÍ
Rannsóknaráherslur: Farsæld og velfarnaður í skólasamfélaginu með áherslu á núvitund, samkennd, félags-, tilfinninga- og siðferðisfærni, seiglu og heilsueflingu.

Dr. Ingibjörg Vala Kaldalóns Menntun:
BA í stjórnmála- og félagsfræði
MA í félagsfræði
PhD frá Menntavísindasviði HÍ
Starf: Dósent við Menntavísindasvið HÍ
Rannsóknaráherslur: Velfarnaður nemenda og kennara í skólastarfi með áherslu á sjálfræði, seiglu, félags-, tilfinninga- og siðferðisnám ásamt rannsóknum á sviði áfallaþroska.

Margrét Stella Kaldalóns Menntun:
BS í sálfræði,
MA í kynjafræði.
M.Ed. í kennslufræði
Starf: Grunnskólakennari og kynjafræðingur

Svanhvít Lilja Viðarsdóttir Menntun:
BS í Náttúru- og umhverfisfræði
MT í kennslu náttúrugreina
Starf: Grunnskólakennari

Unnur Kaldalóns
Menntun:
BS í sálfræði
MS í klínískri atferlisfræði.
Starf: Klínískur atferlisfræðingur
Þjálfarateymið
Þessir aðilar hafa lokið formlegri þjálfun frá Emory háskóla til að þjálfa fagfólk til að miðla efninu til nemenda.

Bryndís Jóna Jónsdóttir
Menntun: B.Ed. grunnskólakennarafræði
MA náms- og starfsráðgjöf
MA diplóma í jákvæðri sálfræði
Af hverju Samfó:
Ég trúi því að samkennd sé ein mikilvægasta færni framtíðarinnar. Með Samfó fá börn, ungmenni og fullorðnir tækifæri til að efla vitund, samkennd og ábyrgð gagnvart sjálfum sér, öðrum og samfélaginu. Samfó hjálpar okkur að rækta þau gildi og þá færni sem þarf til að byggja upp heilbrigð samskipti og samfélag þar sem öllum getur liðið vel og lifað farsælu lífi.

Ebba Áslaug Kristjánsdóttir
Menntun: B.Ed. grunnskólakennarafræði
MA diplóma í jákvæðri sálfræði
MA í uppeldis- og menntunarfræðum
Af hverju Samfó:
Samfó snýst í stuttu máli um að styrkja tengslin við okkur sjálf, annað fólk og heiminn í heild. Þar er lögð áhersla á sjálfsþekkingu og samkennd ásamt virðingu, ábyrgð og valdeflingu. Allt eru þetta mikilvægir þættir þegar horft er til þess að takast á við lífið, vera virk í samfélaginu og leggja sitt af mörkum. Fátt getur verið mikilvægara en einmitt það.

Hjördís Jónsdóttir
Menntun: B.Ed. grunnskólakennarafræði
MA í stjórnun menntastofnanna

Dr. Ingibjörg Vala Kaldalóns
Menntun: BA í stjórnmála- og félagsfræði
MA í félagsfræði
PhD frá Menntavísindasviði HÍ
Af hverju Samfó:
Því SAMFÓ snýst ekki bara um persónulega, tilfinningalega og félagslega færni. Þó sú færni sé mikilvæg snýst SAMFÓ líka um það hvernig manneskjur við viljum vera og hvernig samfélag við viljum skapa saman. Námsefnið ræktar samkennd, mennsku og samfélagslega ábyrgð, um leið og það styður við þá færni sem við þurfum til að eiga góð samskipti og takast á við áskoranir lífsins. Það byggir jafnframt á áfallamiðaðri nálgun og tekur því tillit til ólíkra þarfa og reynslu fólks.

Soffía H. Weisshappel
Menntun: B.Ed. grunnskólakennarafræði
MA uppeldis- og menntunarfræði
MA diplóma í Menntastjórnun og matsfræði
M.Ed. starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf
Af hverju Samfó?
Samfó leggur grunn að sjálfsvitund, tilfinningastjórn og jákvæðum samskiptum með markvissri þjálfum í félags- og tilfinningarfærni. Auk þess að undirbúa nemendur fyrir þátttöku í lýðræðislegu samfélagi þar sem ábyrgð, samvinna og umhyggja fyrir öðrum skipta máli. Samfó er lykillinn að mennskunni.

Steinunn Jenný Skúladóttir
Menntun: B.Ed. frá grunnskólakennarafræði
MA diplóma í Uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á áhættuhegðun og seiglu unglinga
Afhverju Samfó?
Samfó er mikilvæg viðbót fyrir íslenskt skólakerfi þar sem nálgunin eflir félags- og tilfinningahæfni, samkennd og seiglu og styður þannig við vellíðan og farsæld nemenda, kennara og skólasamfélagsins alls.

Svanhvít Lilja Viðarsdóttir
Menntun: BS í Náttúru- og umhverfisfræði
MT í kennslu náttúrugreina
Af hverju samfó?
Ég hef trú á því að þeir þættir sem nemendur fá tækifæri til að kynnast og þjálfa með námsefninu auki vellíðan þeirra. Að aukin samkennd og betri samskipti þróist innan skóla sem nýta námsefnið. Við hjálpum nemendum að auka skilning á tilfinningum sínum, auka seiglu og sjálfsvitund. Ef nemendur hafa tæki og tól til að aðstoða sig að skilja tilfinningar og líðan, hafa seiglu til að takast á við áskoranir og beri samkennd í brjósti sínu þá mun þeim vegna vel á öllum sviðum lífsins.
