
Samfó; ég, þú og við öll
Félags-, tilfinninga- og siðferðinám
Nám og fræðsla
Samfó (e. SEE Learning) snýst um okkur öll – mig, þig og samfélagið sem við mótum saman. Með verkefnum sem efla sjálfsvitund, samkennd og samskipti er námsefninu ætlað að styðja við þroska og farsæld nemenda og annarra sem skólasamfélaginu tilheyra.
Hér fyrir neðan getur þú fengið upplýsingar um námsefnið sjálft og hvernig hægt er að kynna sér það nánar og fá formlega þjálfun til að kenna það.
Námsefnið
Heildstætt námsefni fyrir öll skólastig
Námsefnið er aldursmiðað og nær frá leikskóla til framhaldsskóla en byggir á sameiginlegum kjarnahugmyndum sem tryggja samfellu í færniþjálfun í gegnum alla skólagönguna. Það samanstendur af:
-
Fræðilegri handbók (SEE Learning Companion) – grunnur fyrir kennara og fagfólk
-
Leikskólastig (SEE Learning PLAY)
-
Yngsta stig grunnskóla (Early Elementary)
-
Miðstig grunnskóla (Late Elementary)
-
Unglingastig (Middle School)
-
Framhaldsskólastig (High School)
Hver hluti inniheldur skipulagða kafla með lykilþemum sem styðja við alhliða þroska nemenda.
Lykilþemur námsefnisins
Kennslan byggir á eftirfarandi meginþáttum:
-
Bekkjarandi og jákvætt námsumhverfi
-
Seigla og sjálfstjórn
-
Athygli og sjálfsvitund
-
Tilfinningalæsi
-
Félagsvitund og samskiptafærni
-
Samkennd gagnvart sér og öðrum
-
Samfélagsleg ábyrgð
-
Að skapa betri heim
Þróað á traustum fræðilegum grunni
Samfó var þróað af alþjóðlegu teymi sérfræðinga í samstarfi við Emory háskóla og kom fyrst út árið 2019. Námsefnið á rætur í félags- og tilfinninganámi (SEL), sem byggir á sterkum rannsóknargrunni, en þróar enn frekar með:
-
markvissri þjálfun athygli
-
áfallamiðaðri nálgun
-
áherslu á fjölmenningu, samkennd og samfélagslega ábyrgð
Af hverju Samfó?
Rannsóknir benda til þess að námsefnið geti stuðlað að:
-
aukinni samkennd og hæfni til að setja sig í spor annarra
-
betri sjálfsvitund og sjálfsstjórn
-
sterkari félagsfærni og samskiptum
-
aukinni sjálfstrausti og þátttöku í námi
-
meiri ábyrgð gagnvart samfélagi og umhverfi
Þetta er sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að alþjóðlegar kannanir, eins og PISA, sýna að íslenskir nemendur standa frammi fyrir flóknum áskorunum og telja sig eiga erfiðara með að sýna samkennd eða hafi lakari samstarfsfærni en meðaltal jafnaldra þeirra innan OECD ríkja.
Kennslufræði SAMFÓ
Kennslufræði Samfó byggir á árangursríkum aðferðum í félags-, tilfinninga- og siðferðinámi. Nálgunin fylgir svokölluðum SAFE-viðmiðum sem styðja árangursríka færniþjálfun: nám er skipulagt í skrefum, byggir á virkri þátttöku, leggur áherslu á markvissa þjálfun og hefur skýr markmið.
Í Samfó er lögð áhersla á:
-
virka þátttöku nemenda í gegnum fjölbreyttar æfingar
-
ígrundun og samtal
-
tengingu við raunverulegar aðstæður
Fyrir kennara þýðir þetta skýra uppbyggingu, hagnýtar æfingar og raunhæf verkfæri sem auðvelda að samþætta færniþjálfun við daglegt skólastarf.
Öruggt og styðjandi námsumhverfi
Nálgunin er áfallamiðuð og tekur mið af fjölbreyttum þörfum nemenda. Áhersla er lögð á öryggi, samkennd og jákvæð samskipti í skólanum. Kennarinn gegnir lykilhlutverki sem fyrirmynd og leiðbeinandi í því að skapa styðjandi og uppbyggilegt námsumhverfi.
Á heimasíðu SEE Learning Emory má nálgast sýnishorn af námsefninu á ensku en verið er að vinna að þýðingu þess á íslensku og mun það verða ókeypis og aðgengilegt á þessari vefsíðu jafnóðum og hver kennslubók verður tilbúin.
Þjálfun fagfólks
Ef þú vilt læra meira um SAMFÓ þá getur þú byrjað á þessum skrefum.
Skref 1 – Kynntu þér grunninn
Hér getur þú hafið þína SAMFÓ vegferð með því að skrá þig á SEE 101 vefnámskeiðið á vef Emory háskóla. Námskeiðið er ókeypis og tekur um fjórar til sex klukkustundir að ljúka því á þínum tíma og hraða. Á þessu námskeiði færðu skýra yfirsýn yfir hugmyndafræði og uppbyggingu námsefnisins.
[Skrá mig í SEE 101]
Skref 2 – Fáðu aðgang að námsefninu
Eftir að þú hefur lokið SEE 101 vefnámskeiðinu opnast aðgangur að fjölbreyttu og gjaldfrjálsu námsefni og kennslugögnum á ensku í gegnum vef Emory háskóla.
Verið er að vinna að þýðingum á íslensku og veitum við upplýsingar og aðgengi að íslenskum þýðingum eftir því sem þeirri vinnu vindur fram. Vinsamlegast hafðu samband við okkur ef þú vilt frá frekari upplýsingar um námsefnið á íslensku.
[Hafa samband] netfang samtakanna á Íslandi
Skref 3 – Vertu hluti af samfélagi
Það eru fjölbreyttir möguleikar á að vera hluti af SAMFÓ samfélaginu á Íslandi og alþjóðlega. Taktu þátt í alþjóðlegu neti kennara og fagfólks sem vinnur saman að því að efla félags-, tilfinninga- og siðferðinám.
[Tengjast netverki SEE Learning] skrá á póstlista íslensku samtakanna, samfélagsmiðla og þess háttar.
Skref 4 – Formleg kennsluþjálfun
Ef þú vilt ljúka formlegu námi þá er boðið uppá námskeið við Menntavísindasvið Hí sem sérhæfir sig í að kynna og þjálfa fagfólk í að miðla SAMFÓ námsefninu á námskeiðinu UME208F Félags- og tilfinningahæfni í uppeldi og menntun. Einnig er hægt að fara í formlega fjarþjálfun á vegum Emory Háskóla sem miðar að því að þjálfa fagfólk sem vill leiðbeina öðrum sem ætla að kenna SAMFÓ námsefnið. Nánari upplýsingar um það má fá með því að hafa samband við samtökin.
