top of page
shutterstock_1859682571.jpg

Samtökin

Samtök um félags-, tilfinninga- og siðferðinám á Íslandi eru félagasamtök fagfólks sem hafa það markmið að auka samkennd í samfélaginu með því að efla félags-, tilfinninga- og siðferðisfærni í íslensku samfélagi.

Samtökin starfa í nánu samstarfi við skólasamfélagið og stefnumótandi aðila með það að markmiði að auka aðgengi að gagnreyndu námsefni og fræðslu á þessu sviði. Jafnframt beita þau sér fyrir innleiðingu og rannsóknum sem styðja við markvissa þróun og gæði í námi og starfsháttum.

 

Hér er hægt að skrá sig í samtökin

 

Samtökin hafa haft rík tengsl við skóla- og fræðasamfélagið frá stofnun þeirra og starfandi er lærdómssamfélag sem samanstendur af reynslumiklum kennurum og fræðafólki. Sá hópur hefur haft veg og vanda að þýðingu og staðfærslu námsefnisins auk þess að hittast reglulega og næra sameiginlegan fræðilegan áhuga.

​

Stofnendur og stjórn samtakanna skipa þær Bryndís Jóna Jónsdóttir og Dr. Ingibjörg Vala Kaldalóns en þær stofnuðu samtökin árið 2024 með dætrum sínum, Svanhvíti Lilju Viðarsdóttur, Unni Kaldalóns og Margréti Stellu Kaldalóns.

 

​

 

​

 

​

​

Bryndís Jóna Jónsdóttir
Menntun:

B.Ed. grunnskólakennarafræði

MA náms- og starfsráðgjöf

MA diplóma í jákvæðri sálfræði 

Starf: Aðjúnkt og doktorsnemi við Menntavísindasvið HÍ

Rannsóknaráherslur: Farsæld og velfarnaður í skólasamfélaginu með áherslu á núvitund, samkennd, félags-, tilfinninga- og siðferðisfærni, seiglu og heilsueflingu.

Dr. Ingibjörg Vala Kaldalóns
Menntun:

BA í stjórnmála- og félagsfræði 

MA í félagsfræði 

PhD frá Menntavísindasviði HÍ

Starf: Dósent við Menntavísindasvið HÍ

Rannsóknaráherslur: Velfarnaður nemenda og kennara í skólastarfi með áherslu á sjálfræði, seiglu, félags-, tilfinninga- og siðferðisnám ásamt rannsóknum á sviði áfallaþroska.

Margrét Stella Kaldalóns
Menntun:

BS í sálfræði, 

MA í kynjafræði. 

M.Ed. í kennslufræði  

Starf: Grunnskólakennari og kynjafræðingur

​

Svanhvit-Lilja.jpg
Svanhvít Lilja Viðarsdóttir
Menntun:

BS í Náttúru- og umhverfisfræði 

MT í kennslu náttúrugreina 

Starf: Grunnskólakennari

Unnur Kaldalóns             Menntun:

BS í sálfræði

MS í klínískri atferlisfræði. 

Starf: Klínískur atferlisfræðingur

Þjálfarateymið 

 

Þessir aðilar hafa lokið formlegri þjálfun frá Emory háskóla til að þjálfa fagfólk til að miðla efninu til nemenda.

​

Bryndís Jóna Jónsdóttir

Menntun: B.Ed. grunnskólakennarafræði

MA náms- og starfsráðgjöf

MA diplóma í jákvæðri sálfræði 

 

Af hverju Samfó:

Ég trúi því að samkennd sé ein mikilvægasta færni framtíðarinnar. Með Samfó fá börn, ungmenni og fullorðnir tækifæri til að efla vitund, samkennd og ábyrgð gagnvart sjálfum sér, öðrum og samfélaginu. Samfó hjálpar okkur að rækta þau gildi og þá færni sem þarf til að byggja upp heilbrigð samskipti og samfélag þar sem öllum getur liðið vel og lifað farsælu lífi.

Ebba Áslaug Kristjánsdóttir 

Menntun: B.Ed. grunnskólakennarafræði

MA diplóma í jákvæðri sálfræði 

MA í uppeldis- og menntunarfræðum 

 

Af hverju Samfó:

Samfó snýst í stuttu máli um að styrkja tengslin við okkur sjálf, annað fólk og heiminn í heild. Þar er lögð áhersla á sjálfsþekkingu og samkennd ásamt virðingu, ábyrgð og valdeflingu. Allt eru þetta mikilvægir þættir þegar horft er til þess að takast á við lífið, vera virk í samfélaginu og leggja sitt af mörkum. Fátt getur verið mikilvægara en einmitt það.

Halla Ósk Heiðmarsdóttir

Menntun:

BA í uppeldis- og menntunarfræði 

MA námi í uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á sálfræði. 

 

Af hverju Samfó? 

Íslenskt menntakerfi þarf að leggja aukna áherslu á félags- og tilfinningafærni til að efla farsæld nemenda og allra innan skólasamfélagsins. Samfó er árangursrík nálgun þar sem einnig er unnið með að bæta samkennd og seiglu nemenda gegnum aðgengilega námskrá þvert á skólastigin. 

Screenshot 2026-09-29 at 11.19.45.png

Hjördís Jónsdóttir

Menntun:

B.Ed. grunnskólakennarafræði

MA í stjórnun menntastofnanna með áherslu á velferð

 

Af hverju Samfó:

Ég tel Samfó vera mikilvæga viðbót fyrir íslenskt skólasamfélag þar sem nálgunin eflir félags- og tilfinningafærni, samkennd og seiglu og styður þannig við velferð og farsæld nemenda og starfsfólks og skólasamfélagsins alls.

Dr. Ingibjörg Vala Kaldalóns

Menntun: BA í stjórnmála- og félagsfræði 

MA í félagsfræði 

PhD frá Menntavísindasviði HÍ

 

Af hverju Samfó:

Því SAMFÓ snýst ekki bara um persónulega, tilfinningalega og félagslega færni. Þó sú færni sé mikilvæg snýst SAMFÓ líka um það hvernig manneskjur við viljum vera og hvernig samfélag við viljum skapa saman. Námsefnið ræktar samkennd, mennsku og samfélagslega ábyrgð, um leið og það styður við þá færni sem við þurfum til að eiga góð samskipti og takast á við áskoranir lífsins. Það byggir jafnframt á áfallamiðaðri nálgun og tekur því tillit til ólíkra þarfa og reynslu fólks. 

Soffía H. Weisshappel

Menntun: B.Ed. grunnskólakennarafræði

MA uppeldis- og menntunarfræði

MA diplóma í Menntastjórnun og matsfræði

M.Ed. starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf

​

Af hverju Samfó?

Samfó leggur grunn að sjálfsvitund, tilfinningastjórn og jákvæðum samskiptum með markvissri þjálfum í félags- og tilfinningarfærni. Auk þess að undirbúa nemendur fyrir þátttöku í lýðræðislegu samfélagi þar sem ábyrgð, samvinna og umhyggja fyrir öðrum skipta máli. Samfó er lykillinn að  mennskunni.

Steinunn Jenný Skúladóttir

Menntun: B.Ed. frá grunnskólakennarafræði

MA diplóma í Uppeldis- og menntunarfræði með áherslu á áhættuhegðun og seiglu unglinga

 

Afhverju Samfó? 

Samfó er mikilvæg viðbót fyrir íslenskt skólakerfi þar sem nálgunin eflir félags- og tilfinningahæfni, samkennd og seiglu og styður þannig við vellíðan og farsæld nemenda, kennara og skólasamfélagsins alls.  

Svanhvit-Lilja.jpg

Svanhvít Lilja Viðarsdóttir

Menntun: BS í Náttúru- og umhverfisfræði 

MT í kennslu náttúrugreina 

 

Af hverju samfó? 

Ég hef trú á því að þeir þættir sem nemendur fá tækifæri til að kynnast og þjálfa með námsefninu auki vellíðan þeirra. Að aukin samkennd og betri samskipti þróist innan skóla sem nýta námsefnið. Við hjálpum nemendum að auka skilning á tilfinningum sínum, auka seiglu og sjálfsvitund. Ef nemendur hafa tæki og tól til að aðstoða sig að skilja tilfinningar og líðan, hafa seiglu til að takast á við áskoranir og beri samkennd í brjósti sínu þá mun þeim vegna vel á öllum sviðum lífsins. 

bottom of page